velkomin á leiðinlegu síðuna.
þessi síða var búin til í dos-edit. hún kemur best út í hvaða rápara sem þú hefur við höndina.
þessi síða er ekki í smíðum. hún verður bara eins og hún er. alltaf.
allt í kringum vefinn er fólk að reyna slá hvort annað út, með "obbolítið meira af þessu" og "obbolítið meira af hinu".
ekki hér.
við hjá leiðinlegu síðunni höfum einfaldlega ekki úthaldið. það eina sem við gátum gert var þetta.
við erum jafnvel með kóða. þú mátt sjá hann ef þú ert ein(n) af þeim sem hefur gaman af slíku.
við erum ekki einu sinn i með titil efst í ráparaglugganum. síðan er það leiðinleg.
viltu kannski sjá nokkrar myndir? við höfum engar. en við höfum heyrt að aðrir hafa myndir. kannski þú gætir gefið okkur nokkrar.
en hvað um smá javascript? eigum við að sýna þér javascript sýningu? því miður. við höfum ekki nennt að læra á javascript ennþá.
menn eru orðnir svo latir í dag. hvert sem þú ferð, sérðu ekkert nema spennu, spennu, spennu.
ekki hér.
hér treystum við á ekkert nema hin rituðu orð. já, þau eru leiðinleg, en við erum að minnsta kosti ekki höfða þeirra flottu og glæsilegu.
sérðu myndakortið okkar? nei? það er vegna þess að við eigum það ekki til.
ertu hér vegna tenglanna okkar? ef þú þarft leiðbeiningar okkar til annara síðna á vefnum geturðu alveg eins slökkt á tölvunni þinni.
skráarsöfn? góður þessi.
láttu okkur vita hvað þér finnst um staðinn okkar -- fylltu út hugmyndaformið okkar, sem verður sent til ... já, já, já... við erum alveg sprenghlægileg.
heldurðu að eitthvað flott cgi script muni lífga upp á síðuna? kannski leitarvél sem finnur leiðinlega hluti eða eitthvað. nei -- það er líklega slæm hugmynd. við viljum ekki ofgera neitt, er það nokkuð? ef það er ekki í ólagi, því þá að laga það, ekki satt?
það yrði örugglega fyrir bestu. við skiljum þá bara við 'ana svona.
þettu hefur verið leiðinleg síða. takk fyrir að heimsækja okkur, og ekki meiða þig á leiðinni út í þennan nútímalega, javascript-fulla, hreyfimynda-ríka, hægvirka heim. þegar þú þarft frið og ró, leitaðu þá til okkar.
við verðum hér. allt í lagi, bara einn tengil. Ef þú ert að velta því fyrir þér hver bjó til þessa síðu, geturðu smellt hér.